Hér eru tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Elstu umhverfisvendrasamtök Íslands, hreyfanlegur náttúruskóli á Álandseyjum og umhverfissamtök barna í Noregi eru á meðal átta tilnefninga til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2026.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs beina í ár kastljósinu að verkefnum sem fræða börn og ungmenni í umhverfis- og loftslagsmálum.

Tilnefningar átta til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026:

Tilkynnt verður um handhafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 þann 20. október. Verðlaunagripurinn Norðurljós verður afhentur 28. október við verðlaunaathöfn í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki. Verðlaunahafinn hlýtur 300.000 danskar krónur.

Þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Þema umhverfisverðlaunanna er mismunandi frá ári til árs. Þema ársins 2026 snýst um skapa ungum þekkingu, hæfni og rödd til að geta haft áhrif á framtíð sína og leggja sitt af mörgum til sjálfbærrar þróunar og að bregðast við loftslagsbreytingum. 

Um umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru fyrst veitt árið 1995 og markmiðið með þeim er að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndum. Þau eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem öðrum til eftirbreytni hefur tekist að samþætta umhverfissjónarmið starfsemi sinni eða framtaki eða á annan hátt lyft grettistaki í þágu umhverfisverndar.

Ferlið er opið og er öllum frjálst að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Í ár bárust 53 tillögur.