Matseðill náttúrunnar: Dagur sjálfbærrar matargerðarlistar
17:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis
Í tilefni alþjóðlegs dags sjáfbærrar matargerðarlistar bjóðum við uppá fræðslugöngu og plöntusmakk fyrir utan Norræna húsið. Í gönguferðinni munum við bera kennsl á villtar matjurtir, og kynna okkur gróðurinn á svæðinu.
Gangan hefst við Norræna húsið kl. 17, fimmtudaginn 18. júní. Þátttaka er ókeypis og öll eru velkomin!
Við gróðurhús Norræna hússins mun Slow Food á Íslandi vera með sýnimatreiðslu, þar sem kokkar frá Slow Food hreyfingunni vinna með al-íslenskt hráefni og villtar íslenskar plöntur – og gestir geta að sjálfsögðu fengið smá smakk og spjallað við kokkana.
Viðburðurinn er í boði Norræna hússins, Borgarnáttúru – Urban Biodiversity Iceland, Slow Food á Íslandi og Grasagarðs Reykjavíkur.
Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.