Sigmundur collecting leaves from a tree in black and white holding a basket

Tesiða// HönnunarMars 2026


09:00-09:30

Sigmundur býður upp á rólega testund í Plantan Bístró, þar sem gestir geta notið japansks te á borð við sencha, houjicha, oolong og matcha.

Testund flytur inn hágæða te beint frá Wazuka í Japan og leggur áherslu á uppruna, gæði og athöfnina við að drekka te. Sigmundur Páll, stofnandi Testundar, sýnir einnig textílverk sem móta andrúmsloftið í rýminu og endurspegla áhrif japanskrar te-hefðar á hönnun hans.

Aðgengisupplýsingar um rými Norræna hússins er að finna með því að smella hér. 

Aðrir viðburðir