picture of designer in her own collection with the text: Design March and Hinnun Mars in blue and organe with a wave splashing water infront of the designer

Ástandið// HönnunarMars 2026


10:00-17:00
Alvar Aalto
Ása Bríet Brattaberg mun sýna masterslínuna sína ‘Ástandið’ úr Institute Francais de la mMode á Hönnunarmars 2026 í norræna húsinu.
Ása Bríet er klæðskeri og textílhönnuður, útskrifaðist úr fatahönnun úr Central Saint Martins árið 2023 áður en hún sérhæfði sig í fatahönnun í prjóni úr Institute Francais de la Mode í París. Ása Bríet býr og vinnur sem prjónahönnuður í París.

Ása Bríet verður við og til í spjall um prjón, hönnun, minningar og hefðir:
– 07.maí 12:00-15:00
– 8.maí 10:00-20:00
– 9.maí 14:00-17:00
– 10.maí 14:00-17:00
Um línuna ‘Ástandið’:
Ástarsaga íslenskrar konu og bandarísks hermanns lifir áfram í jakk­anum sem hann skilur eftir. Með tímanum dofnar bæði minningin og flíkin sjálf, þar til aðeins þræðirnir standa eftir. Hún byrjar að gera við hann, spor fyrir spor, knúin áfram af ást á handverki og varðveislu. Þessi saga er ofin inn í flíkurnar, þar sem niðurrif og viðgerðir mætast. Flíkurnar hanga saman á þræði og eru endurbyggðar með fíngerðum prjónaaðferðum. Línan fjallar um ást, missi, minningar og það að varðveita fortíðina með handverki.

Aðrir viðburðir