Pølse og Poesi written in read with the Ø being formed by a pølse, on yellow background

Pølse&Poesi


17:00
Elissa Auditorium

Pølse&Poesi ársins verður haldin á laugardaginn 13. júní klukkan 17:00.  Takið daginn frá!

Í þetta skiptið fáum við góða gesti frá Svíþjóð sem lesa upp ljóð sín ásamt íslenskum skáldum. Einnig fáum við að heyra ljóð eftir skáld sem tóku þátt í ritlistarnámskeiði Norræna hússins nú í vor. Eins og alltaf verða pylsur, drykkir, samvera og upplestur í boði. Þemað er mold/himna og tengist sýningunni Himna í Hvelfingu.

Lesið verður á íslensku, sænsku og norsku. Öll velkomin!

Upphitunarskáld:

Sóldís, Embla og Marta


Gestaskáld: 

Anna Hallberg er fædd 1975 og gaf út frumraun sína árið 2001, ljóðabókina Friktion. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og enn fleiri tilnefningar. AN er tíunda ljóðabók hennar og þriðja skiptið sem hún hlýturtilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs; áður hefur hún verið tilnefnd fyrir ljóðabækurnar Colosseum Kolosseum frá 2010, og På era platser frá 2004. Auk ferils síns sem ljóðskáld hefur hún um árabilstarfað sem áhrifamikill og virtur bókmenntagagnrýnandi og álitsgjafi um ljóðlist í sænskum fjölmiðlum.  

Sigurbjörg Þrastardóttir er fædd 1973. Fyrsta bók hennar, ljóðabókin Blálogaland, kom út árið 1999 en síðan hefur hún sent frá sér fleiri ljóðabækur, leikrit og prósaverk. Sigurbjörg hefur fengið fleiri viðurkenningarfyrir verk sín. Ljóðsagan Blysfarir hlaut Fjöruverðlaunin 2008 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þá var ljóðabókin Brúður tilnefnd til Menningarverðlauna DV 2010. Ljóð Sigurbjargar hafa veriðþýdd á fjölda tungumála í tengslum við bókmenntaþing, ljóðahátíðir og útgáfu safnrita um Evrópu þvera.  

Jörgen Gassilewski, fæddur 1961, er menntaður myndlistarmaður en er einnig virkur ljóðskáld, rithöfundur, gagnrýnandi, þýðandi og menningarblaðamaður. Fyrsta ljóðabókin hans, Du, var gefin út 1987. Gassilewski hefur verið tilnefndur til August-verðlaunanna og árið 2021 hlaut hann Erik Lindegren-verðlaunin. Árið 2011 kom út safnútgáfa af ljóðum Gassilewski, Hittills samlad poesi 1983–2009. Hann hefurskrifað fyrir Lyrikmagasinet í P1 og setið í ritstjórn ljóðatímaritsins OEI. Hann arfar líka sem kennari og heldur ritnámskeið. 

Sölvi Halldórsson er fæddur og uppalinn á Akureyri og lauk BA-prófi í íslensku og dönsku frá Háskóla Íslands árið 2019, og meistaraprófi í ritlist frá sama skóla árið 2024. Sölvi hefur skrifað bókmenntarýni fyrirVíðsjá og birt ljóð í Pastel ritröð og ýmsum safnritum, nú síðast Munnbita Ástarsögufélagsins. Sölvi býr í Reykjavík og er meðlimur í ljóðakollektívinu MÚKK. Hann gaf út ljóðabókina Þegar við vorum hellisbúar fyrirtveimur árum. 

Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.