Alvar Aalto Route eða “Alvar Aalto leiðin” tengir saman staði sem hannaðir voru af arkitektastofu Alvars Aalto og myndar heillandi menningarferðaleið um Evrópu. Auk Finnlands getur þú notið meistaraverka Aalto í löndum á borð við Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi og Eistlandi. Alvar Aalto leiðin býður upp á upplifanir í heimi arkitektúrs og hönnunar, nálægð við náttúruna, gæða gistingu og staðbundna sérstöðu.

Alvar Aalto leiðin hlaut viðurkenningu sem Menningarleið Evrópuráðsins árið 2021. Slík viðurkenning felur í sér að leiðin tilheyri neti virtustu menningarleiða Evrópu.
Menningarleiðaverkefnið, sem Evrópuráðið setti á laggirnar árið 1987, sýnir á áþreifanlegan hátt, með ferðalagi í gegnum rúm og tíma, hvernig arfleifð ólíkra landa og menningar Evrópu myndar sameiginlega menningararfleifð. Með Menningarleiðunum endurspeglast meginmarkmið Evrópuráðsins og þau útfærð með raunverulegum verkefnum: mannréttindi, menningarlegt lýðræði, fjölbreytileiki og menningarleg sjálfsmynd, samtal, gagnkvæm samskipti og gagnkvæmri menningarlegri auðgun milli landa og kynslóða. Árið 2023 voru 47 viðurkenndar Menningarleiðir Evrópuráðsins.
Lestu meira um Alvar Aalto leiðirnar á heimasíðu þeirra hér.





