Velkomin í fjölskylduvæna leiðsögn um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum


14:00
Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Velkomin í fjölskylduvæna leiðsögn um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum, um er að ræða leiðsögn sem er sérstaklega aðlöguð að börnum.

Taktu þátt í rólegri, klukkustundarlangri göngu um sýninguna með Ásthildi Jónsdóttur sýningarstjóra; leiðsögnin fer fram á íslensku. Við skoðum saman listaverk og vísindarannsóknir um norðurslóðir, snjó, ís og jökla og þær breytingar sem eiga sér stað á þessum slóðum vegna veðurfarsbreytinga.

Börn geta leikið og prófað ýmis verkefni á meðan á leiðsögninni stendur, og fjölskyldum er svo velkomið að dvelja áfram og taka þátt í fleiri smiðjum í barnabókasafninu, að leiðsögn lokinni.

Við skulum uppgötva og kanna norðrið saman í gegnum leik og verkefni!

Um sýninguna og listafólkið

Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum sameinar listafólk og vísindafólk í því að kanna djúpar umhverfislegar, menningarlegar og skynrænar breytingar sem nú eiga sér stað á norðurslóðum. Sýningin sem fjallar um áhrif loftslagsbreytinga á snjó, ís og jökullandslag, hvetur gesti til að velta fyrir sér sambandi mannsins við náttúruna og menningarlegu mikilvægi norðurslóða.

Listafólk: Britta Marakatt-Labba, Ivínguak´ Stork Høegh, Josefina Nelimarkka og Þorvarður Árnason.

Lestu meira um sýninguna – smelltu hér.

Upplýsingar um aðgengi og opnunartíma má finna hér.

Aðgangur að sýningum í Norræna húsinu er ókeypis.

Aðrir viðburðir