Samskipti áferða -HönnunarMars 2026


10.00-17:00
Elissa Auditorium

Samskipti áferða er sería af fimm vélprjónuðum veggteppum. Hvert teppi er prjónað með þremur til fjórum litum úr bómullargarni og byggir á prjónaðferðum sem skapa áferð, lagskiptingu og dýpt.

Verkið kannar þannig samspil prjónaðferða og lita í gegnum mótíf hreyfanlegra forma og línulegra strúktúra og hvernig litir geta dofnað, blandast eða breyst eftir sjónarhorni og undirliggjandi byggingu efnisins.

Guðjón Andri útskrifaðist frá Fatahönnunar deild Listaháskóla Íslands árið 2017 og hélt eftir það í meistaranám í Textíl hönnun við The Swedish School of Textiles við Háskólann í Borås í Svíþjóð. Hann heillaðist snemma af prjóni sem miðli og hefur síðan unnið tilraunakennt með möguleika tækninnar, með sérstaka áherslu á samband efnis, byggingar og litar. Hann starfar nú sem Senior Knitwear Programmer hjá Knitwear Lab í Almere í Hollandi, þar sem hann kemur að þróun og framleiðslu prjónaðs textíls með háþróaðri þrívíddarprjónatækni.

Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.

Aðrir viðburðir