Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu!


10:00

Velkomin á sýningu á verkum barna úr grunnskólum Reykjavíkur.

Á sýningunni Innblásin af norðri verða sýnd textílverk, klippi- og vídeóverk og málverk nemenda úr Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Verkin eru öll innblásin af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem nú stendur yfir í Norræna hússinu. Verkin eru unnin undir handleiðslu listamanna auk list- og verkgreinakennurum skólanna.  Sýningin verður í anddyri við aðalinngang og í barnabókasafnin Norræna hússins daganna sem að hátíðin fer fram og opin á opnunartímum hússins 10-17.

Skólahópum er boðið til þátttöku í skapandi og þverfaglegum smiðjum á meðan á Barnamenningarhátíð stendur, þar sem þau kynnast sýningunni Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum. Sýningin leiðir saman listafólk og vísindafólk sem eiga það sameiginlegt að rannsaka þær djúpstæðu umhverfislegu, menningarlegu og skynrænu umbreytingar sem nú eiga sér stað á norðurslóðum. Sýningin skoðar meðal annars áhrif loftslagsbreytinga á snjó, ís og jökullandslag og hvetur gesti til að íhuga samband mannsins við náttúruna og menningarlegt mikilvægi norðursins.

Í smiðjunum fá börn að vinna með hugmyndir sýningarinnar á sinn hátt, í gegnum listsköpun, samtal og þátttöku.

Lögð er áhersla á skynjun, ímyndunarafl og samvinnu, þar sem börn kanna:

  • Snjó, ís, vatn og landslag sem lifandi fyrirbæri
  • Hvernig breytingar í náttúrunni hafa áhrif á fólk, samfélög og menningu
  • Hugmyndina um gárur – hvernig gjörðir okkar geta haft áhrif langt út fyrir okkar eigin heim

 

Hverjir geta tekið þátt?

Leikskólar og grunnskólar (aðlagað eftir aldri)

Frístunda- og menningarstarf

Af hverju að taka þátt?

Börn fá að vinna með raunveruleg og samtímaleg viðfangsefni

Skapandi aðferðir styrkja gagnrýna hugsun, samkennd og umhverfisvitund

Nemendur verða virkir þátttakendur í menningar- og samfélagslegu samtali

Staðsetning: Norræna húsið

Tímabil: 21-24. apríl

Skráning og nánari upplýsingar: hrafnhildur@nordichouse.is

Hægt er að sjá frekari upplýsingar um sýningarnar hér.

 

Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin og skapa gárur saman – í list, hugsun og framtíðarsýn.