Leshringur Norræna hússins 2026 

Leshringur Norræna hússins 2026 

Við lesum bækur á skandinavísku, hittumst og ræðum verkin saman. Bækurnar sem við einblínum á eru verk sem hafa annaðhvort hlotið eða verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. 

Þriðji leshringsfundur verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 18:00. Við lesum Hunter i Huskvarna eftir Söru Stridsberg. Stridsberg er sænskur höfundur, þýðandi og leikskáld. Árið 2007 hlaut hún bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Drömfakulteten.

Fyrsti leshringsfundur fór fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 18:00. Við lásum skáldsöguna Fars rygg eftir Niels Fredrik Dahl, sem hlaut verðlaunin árið 2024.

cover of the book fars rygg. blie letters on a brown background with a old photograph of a young boy.

Annar leshringsfundur fór fram miðvikudaginn 11. mars kl. 18:00. Við lásum Insula eftir Thomas Boberg, sem var tilnefndur til bókmenntaverðlaunanna árið 2025.

cover of the book Insula. Red letters on a background of a sunset background

Auk skáldsagna munum við einnig lesa ljóð, smásögur og önnur bókmenntaform á þessu ári.

Næstu fundir verða 13. maí og 10. júní.

Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst ef þið viljið skrá ykkur á póstlista leshringsins til að fá upplýsingar um bækurnar og næstu fundi.

Umsjónarmaður leshringsins er Silje Beite Løken, verkefnastjóri Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og bókmenntaviðburða í Norræna húsinu. Hægt er að hafa samband við hana í tölvupósti: silje(at)nordichouse.is