Fjölskyldu miðvikudagar


10:30-12:00
Barnabókasafn

Á miðvikudagsmorgnum, eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsæluTónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira.

Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn.

Fylgið okkur á samfélagsmiðlum og flettið upp frekari upplýsingum á nordichouse.is.

Aðgengi í Norræna Húsið: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Viðburðurinn fer fram á íslensku.

Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.

Aðrir viðburðir