Fjölskyldusmiðja á sænsku: Guðrún og trafgrípurinn


10:30-11:30
Barnabókasafn

Öll fjölskyldan er velkomin á sænska vinnustofu með tónlist, myndlist og upplestri!

Hillevi Torell, rithöfundur frá Svíþjóð, heimsækir Norræna húsið og les úr bók sinni Guðrún og trafgrípurinn, sem kom út árið 2025. Bókin er hlý og hugarvekjandi saga um rætur, fjölskyldutengsl, endurfundir, hugrekki og fegurð náttúrunnar. Hún leyfir gestum einnig að heyra söng og tónlist úr bókinni Arne eldar mat – Söngvar með löngum sænskum sérhljóðum. Blöð og litir verða einnig í boði fyrir þá sem vilja teikna.

Hillevi Torell er kennari, tónlistarmeðferðarsérfræðingur og löggiltur sálfræðimeðferðari með áralanga reynslu af starfi með börnum og ungmennum. Hún gaf út sína fyrstu skáldsögu, Goðsögnin um Lunu, árið 2021. Hún býr í Uppsölum í Svíþjóð en hefur stundað nám og dvalist mikið á Íslandi.

þessi viðburður verður haldinn á sænsku og íslensku.

Aðgengi í Norræna húsið:

Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Viðburðurinn fer fram á sænsku og íslensku.

Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.