Straumar í norrænum bókmenntum
16:00
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs verða kynntar fimmtudaginn 26. febrúar. Hvað er það sem við lesum hér á Norðurlöndum? Eru einhverjir straumar eða eitthvað sérstakt sem einkennir norrænar bókmenntir?
Athugið að viðburðurinn fer fram á sænsku og norsku.
Viðburðinum verður streymt. Smellið hér fyrir beint streymi.
Af hverju eru íslenskir höfundar svona nostalgískir? Af hverju skrifa Norðmenn alltaf um flókin fjölskyldutengsl, Danir um fólk sem á erfitt með að finna sig, Svíar um erfiða sjálfsmynd og Finnar um að sætta sig við örlög sín í lífinu? Hvað með Grænlendinga, Sama, íbúa Álandseyja og Færeyinga? Er yfirhöfuð hægt að setja norrænar bókmenntir í einhvern ákveðinn flokk?
Þessum og fleiri spurningum verður velt upp í Norræna húsinu föstudaginn 27. febrúar. Frá Helsinki mun Salomon Hellman, bókasafnsfræðingur, meðal annars segja frá því hvernig móttökur bækurnar hafa fengið frá lesendum í Finnlandi og ræða líkindi við tilnefningar fyrri ára. Að því loknu fer fram samtal milli Yukiko Duke og Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur undir stjórn Silje Beite Løken. Eftir samtalið verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Öll eru velkomnir, aðgangur er ókeypis, við bjóðum upp á létta hressingu og bókasafnið verður opið svo gestir geta fengið lánaðar tilnefndar bækur. Tungumál viðburðar er sænska og norska. Viðburðinum verður streymt.
Aðgengi að Elissu sal er ágætt, lágur þröskuldur er inn í salinn. Frekari upplýsingar um aðgengi er á heimasíðu Norræna hússins.