Málþing um Myndlæsi: Máltaka & læsi
15:00 - 17:30
Norræna húsið býður til málþings um myndlæsi. Í sífellt sjónrænni heimi er hæfileikinn til að túlka og skapa merkingu úr myndum nauðsynlegur þvert á fræðigreinar. Hlustaðu á 4 stuttar kynningar sem fjalla um mismunandi þætti myndlæsis.
Gitte Wille forstjóri Nordisk kulturkontakt kynnir Bokslukaren, samnorrænt verkefni til að efla lestur barnabókmennta á öllum Norðurlöndunum. – ensku
Ingibjörg Hannesdóttir, sérfræðingur í fræðslu og miðlun hjá Listasafni Íslands, mun kynna verkefnið SJÓNARAFL-þjálfun í myndlæsi sem miðar að því á markvissan hátt að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi. – íslensku
Bergrún Íris Sævarsdóttir mun deila sjónarhorni sínu á það hvernig myndir í frásögn miðla dýpri merkingu og segja okkur oft meira en orðin ein. – íslensku
Jenny Lucander fjallar um starf sitt við myndskreytingar. – ensku
Við ljúkum málþinginu með pallborðsumræðum þar sem við ræðum um það hvernig myndlæsi getur hjálpað okkur með tungumál og við lestur. Ingibjörg Hannesdóttir og Bergrún Iris Sævarsdóttir sitja pallborðið ásamt John Åge Boman Homleid norskukennara og Merete Smith-Sivertsen dósent við Háskóla Íslands. Samtalinu stýrir Erling Kjærbo, yfirbókavörður í Norræna húsinu.
Við hlökkum til spennandi málþings með dýrmætri innsýn og líflegum samræðum. Erindin eru ýmist á íslensku eða ensku og samtal og pallborðsumræður fara fram á ensku. Öll velkomin!
Aðgengi: Elissu salur er aðgengilegur hjólastólum en lágur þröskuldur er þó inn í salinn. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins og eru öll salerni kynhlutlaus. Rampur leiðir að Norræna húsinu frá bílastæði og er sjálfvirkur hnappur hjá aðaldyrum.