Öll fjölskyldan er velkomin á Söng – og sögustund á sænsku!


10:30 - 11:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Eftir lestur myndabókarinnar er gestum boðið að læra lag á sænsku og syngja með.

Lesturinn fer fram á barnabókasafni en þar stendur yfir sýningin  TréðSýningin beinir sjónum að mismunandi trjám í barnabókum. Hún inniheldur myndskreytingar úr tólf norrænum myndabókum sem eiga það sameiginlegt að vera hluti af Bókagleypinum, sem er Norrænn gagnagrunnur með fræðsluefni sem tengist bókum sem hafa verið tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Gagnagrunnurinn er ókeypis og aðgengilegur öllum, á öllum Norðurlandamálum, á bokslukaren.org.

Lesnar verða myndabækur og er tilgangur sýningarinnar að hvetja til myndlæsis, svo fjölskyldur sem tala ekki tungumálið eru einnig hvattar til að koma, heyra sænsku og skoða myndirnar. Með aðstoð kennsluefnisins á bokslukaren.org er hægt að skilja innihald bókanna enn betur. Einnig er hægt að leigja sögupoka með úrvali bóka frá sýningunni til að æfa myndlestur heima.

Að loknum upplestri eru gestir hvattir til að vera áfram og njóta bókasafnsins.  Hægt er að taka þátt í gagnvirkum leikjum í tengslum við sýninguna á borð við bananaleikinn en leikir, blöð og liti er hægt að nálgast á afgreiðsluborði bókasafnsins. Þeir sem búa til sína eigin myndskreytingu eða listaverk geta hengja þau upp í sérstökum römmum í miðri sýningunni.

Um upplesara: Linnéa er þverfaglegur myndlistarmaður frá Svíþjóð. Hún hefur einnig starfað sem leiðsögumaður og boðið upp á skógarþerapíu, hlustunarböð og djúphlustun í náttúrunni.  Linnéa hefur búið á Íslandi frá árinu 2021 og á tvö börn á aldrinum 10 og 4 ára.

Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.