Norræna húsið auglýsir tvö störf á sviði kynningarmála og verkefnastjórnunar. Norræna húsið er vettvangur norrænna lista, menningar, tungumála og þjóðfélagsumræðu og býður upp á framsækna og þýðingarmikla dagskrá á sviði lista, bókmennta og samfélagslegra málefna allan ársins hring. Öll okkar starfsemi hefur sjálfbærni að leiðarljósi og leggjum við áherslu á jafnrétti og margbreytileika.
Kynningar- og samskiptastjóri
Norræna húsið óskar eftir að ráða skapandi og drífandi einstakling í starf kynningar- og samskiptastjóra í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Um er að ræða starf sem snýr að markvissri miðlun og kynningu á því fjölbreytta menningarstarfi sem fram fer í Norræna húsinu. Viðkomandi mun bera ábyrgð á samræmingu kynningarmála, samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila, gerð kynningarefnis og fleira sem við kemur kynningu á viðburðum og samskiptum.
Helstu verkefni:
- Ábyrgð og umsjón með kynningar- og samskiptamálum Norræna hússins í samstarfi við forstjóra
- Stýra markvissri og lifandi stafrænni kynningu gegnum samfélagsmiðla og vef Norræna hússins
- Samskipti við fjölmiðla
- Samræma kynningu menningarviðburða
- Gerð kynningarefnis og birtingaráætlana fyrir alla miðla
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða æskileg
- Umtalsverð reynsla af kynningarmálum, helst á sviði menningar
- Reynsla af vefstjórn og umsjón samfélagsmiðla
- Reynsla af samskiptum við fjölmiðla
- Góð samskiptahæfni og stefnumótandi hugsun
- Rík áhersla á frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Hugmyndaauðgi og drifkraftur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, góður skilningur í dönsku, sænsku eða norsku nauðsynlegur
- Góð tölvukunnátta
Verkefnastjóri
Norræna húsið óskar eftir að ráða öflugan verkefnastjóra til að hafa umsjón með verkefninu Norðurlönd í fókus sem leggur áherslu á framtíðarsýn norræns samstarfs 2030 um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Með málstofum, stórum og smáum viðburðum og stafrænum herferðum er verkefnið að vekja athygli á stefnu Norðurlandanna hvað þetta varðar. Sem verkefnastjóri hefur þú einnig það verkefni að leiða skrifstofu umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.
Helstu verkefni:
- Stjórnun viðburða og miðlun upplýsinga sem varða samstarf í Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði
- Fylgjast með og miðla málefnum í brennidepli á Íslandi og á Norðurlöndum
- Umsjón með störfum dómnefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
- Vinna náið með starfsfólki Norræna hússins að verkefnum hússins
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun í félagsvísindum, fjölmiðlun eða á öðru sviði sem nýtist í starfi
- Að lágmarki fimm ára reynsla af störfum tengdum upplýsingamiðlun
- Mikil skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Góð samskiptahæfni og geta til að sýna sveigjanleika og nákvæmni
- Hæfni til að geta tjáð sig vel í skrifuðu og töluðu máli
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, ásamt einu af eftirfarandi tungumálum: dönsku, sænsku eða norsku
- Góð tölvukunnátta
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Við leggjum mikla áherslu á að þú sért skapandi og lausnamiðaður. Þú þarft bæði að geta unnið sjálfstætt og vera góður og traustur liðsmaður. Reynsla af norrænu samstarfi er kostur.
Við bjóðum tímabundinn ráðningarsamning til fjögurra ára með möguleika á fjögurra ára framlengingu samkvæmt reglum Norrænu ráðherranefndarinnar. Upplýsingar um starfsemi Norræna hússins eru á www.nordichouse.is.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Kristjánsson, fjármála- og mannauðsstjóri, johann@nordichouse.is eða í síma 8977099.
Umsóknum, sem skulu vera á sænsku, dönsku eða norsku, þarf að fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf og skal skilað á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org. Umsóknir sem sendar eru á annan hátt verða ekki teknar til greina.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2022.