Vigdísarvaka í Norræna húsinu
13:30
Oddi á Rangárvöllum – miðstöð menningar á ný?
Föstudaginn 2. desember heldur Oddafélagið Vigdísarvöku í Norræna húsinu frá kl. 13:30 – 16:15. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Dagskrá:
Tónlistaratriði frá Rangæingum.
Vigdís Finnbogadóttir fyrrv. forseti Íslands verður gerð heiðursfélagi Oddafélagsins.
Guðrún Snæfríður Gísladóttir leikkona stígur á stokk.
Ingibjörg Ólafsdóttir, sagnfræðingur „Saga Odda“.
Barnakórinn í Mánagarði syngur nokkur lög.
Kaffiveitingar
Ólafur Egilsson, fv, sendiherram, „Stytta Ásmundar Sæmundssonar á selnum og hugmyndir um umhverfi hennar“.
Vala Gunnarsdóttir, fornleifafræðingur, “ Hvað leynist í Oddajörð?“.
Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, “ Oddi á vængjum framtíðar“.
Dagskrárlok
Vökustjóri: Drífa Hjartardóttir, varaformaður Oddafélagsins
cc. Oddi á Rangárvöllum: Sæmundur á selnum, Oddakirkja, Eyjafjallajökull. Ljósm. Þór Jakobsson 21.4.2010.