Vetrartré – Hvað verður um tré á veturna?
13:00 - 15:00
Öll fjölskyldan er velkomin á klippimyndasmiðju sem er innblásin af vetrar trjám!
Tré fara í dvala eða „hægja á sér“ fyrir veturinn þar sem þau skynja breytingu á dagsbirtu. Þetta hjálpar þeim að þola betur kalt hitastig. Flest tré missa laufin sín en tré með nálar – sígræn tré eða jólatré, halda nálunum sínum og geta ljóstillífað yfir veturinn.
Í þessari klippimyndasmiðju eru gestir hvattir til að nota tiltækt efni til að búa til einstakt vetrartré. Það er mögulegt fyrir þá sem þurfa hátíðarkort að setja klippimyndatréð sitt á samanbrotinn pappír til að búa til einstakt kort fyrir ástvin. Efni og leiðbeiningar á mismunandi tungumálum verða í boði og kennarar eru á staðnum til að aðstoða.
Vinnustofan fer fram á íslensku, frönsku og ensku. Hún er ókeypis og allir velkomnir!
Smiðjan fer fram á barnabókasafni þar sem stendur yfir sýningin ,,Tréð”. Sýning beinir sjónum að mismunandi trjám í barnabókum og inniheldur myndskreytingar úr tólf norrænum myndabókum sem eiga það sameiginlegt að vera hluti af Bókagleypinum, sem er Norrænn gagnagrunnur með fræðsluefni sem tengist bókum sem hafa verið tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Gagnagrunnurinn er ókeypis og aðgengilegur öllum, á öllum Norðurlandamálum, á bokslukaren.org. Með sýningunni er sjónum beint að myndlæsi – skilningi á sögum óháð tungumálum og eru gestir hvattir til að lesa bækurnar í gegnum myndirnar.
Efni og leiðbeiningar á mismunandi tungumálum, verða í boði á staðnum og einnig verða kennarar viðstaddir til að aðstoða. Vinnustofan fer fram á íslensku, frönsku og ensku. Hún er ókeypis og öll velkomin!
Kennari smiðjunnar er Estelle Pollaert, franskur þverfaglegur listamaður með aðsetur í Reykjavík. Hún er menntuð sem vöruhönnuður/glerblásari í Frakklandi og í Finnlandi en einbeitir sér nú að myndskreytingum og smíði skúlptúra úr pappírs mâché. List hennar er fjörug, skemmtileg og litrík og full af húmor. Estelle hefur reynslu af kennslu á ensku, frönsku og íslensku.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.