Sequences XII: Pása – Vinnusmiðja með Thomas Pausz


15:00
Gróðurhús

Thomas Pausz bíður ykkur velkomin á vinnusmiðju í Gróðurhúsinu, frá 15-16.

Vinnusmiðjan bíður þáttakendum að skapa og finna nýjar leiðir til frævunar á plöntum og blómum í íslenskum gróðurhúsum – í bland við eða að líkja eftir frævunni.

Thomas Pausz

Thomas Pausz (f. 1978, Frakkland) er myndlistarmaður og hönnuður sem býr í Reykjavík. Thomas gerir skúlptúra og hugmyndafræðileg verk sem kanna siðfræði póst húmanismans, vistfræðilegar spurningar, frásagnir af umhverfinu og möguleika á samlífi tegunda. Innsetningar Pausz kalla gjarnan fram blandaðra heima sem eru á mörkum náttúrlegra kerfa og mannlegrar íhlutunar. Vistfræðileg miðlun hans skapar „núningsfleti“ milli lífvera og tækni og rannsakar draugalega skörun líffræði, tölvunar og vistfræðilegrar siðfræði.

Í verki sínu Double Capture býður hann okkur inn í nána, skynræna kóreógrafíu frævunar — ekki einungis sem líffræðilegs ferlis, heldur sem tímabundins, gagnkvæmt flutnings milli tegunda. Gróðurhúsið verður að lifandi hljóðfæri, stilltu á leyndu merkin sem blóm og frævandi skordýr skiptast á: titrandi tungumál snertingar, litar, ilms og ósýnilegra rafsegulpúlsa. Double Capture vísar til sjálfrar frævunarinnar, þar sem blómið „grípur“ frævandann — og öfugt.

 

 

Sequences – real time art festival er alþjóðlegur myndlistartvíæringur, sem haldinn er í Reykjavík. Að baki Sequences standa Kling & Bang, Nýlistasafnið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar auk fjölda listamanna.

Fylgið Sequences á samfélagsmiðlum:

Aðrir viðburðir