
Orsugiak: Hið hvíta gull Grænlands
16:00
Heimildarmyndin Orsugiak eða Hið hvíta gull Grænlands var frumsýnd í Nuuk í Kalaallit Nunaat – Grænlandi 8. febrúar síðastliðinn og frumsýnd á streymisveitu Danmarks Radio (DR) daginn eftir. Myndin fjallar um námuvinnslu Danmerkur á kryólíti í Ivittuut á vesturströnd Kalaallit Nunaat, sem stóð yfir frá 1854 til 1987. Kryólít er sjaldgæft steinefni sem var meðal annars notað í álframleiðslu. Steinefnið fannst í miklu magni á fyrrnefndu svæði þar til náman sjálf var uppurinn. Eins og greint hefur verið frá á hinum ýmsu fréttamiðlum þá var myndin tekin af streymisveitu DR stuttu síðar eftir frumsýningu ásamt því sem ritstjórinn Thomas Falbe sagði af sér í tilefni þess. Heimildarmyndin og afstaða DR hefur vakið mikið umtal í bæði Danmörku og Grænlandi.
Myndin verður sýnd í fyrsta sinn á Íslandi í Norræna húsinu 22. Mars, kl. 16:00.Frumsýning þessi er áríðandi þáttur í að mæta hræringum sem eru að eiga sér stað í Grænlandi þessa stundina. Líkt og kom fram í skoðanakönnunum í tengslum við nýafstaðnar kosningar þar vill meiri hluti þjóðarinnar kalla eftir fullu sjálfstæði frá danska konungsríkinu. Fræðimaðurinn Sumarliði R. Ísleifsson hefur sagt að Grænlandi sé spegill Íslands. Hvað spegilmyndin segir okkur í dag er vert að staldra við og rýna og mæta til samtals.
Myndin er framleitt af Wintertales framleiðslufyrirtækið í samstarfi við Human tales með stuðning frá Den Vestdanske Filmpulje Þau sem standa að baki myndinni eru Michael Bévort framleiðandi, Naja Dyrendom Graugaard rannsakandi og leikstjórarnir Claus Pilhave og Otto Rosing. Myndin er á dönsku með enskum texta.
Aðgengi í Elissu sal er ágætt, það er lágur þröskuldur inn í salinn. Á sömu hæð er salerni með góðu aðgengi og skiptiaðstöðu. Að Norræna húsinu liggur rampur og við aðaldyrnar er sjálfvirkur hnappur. Frekari spurningar um aðgengismál má senda til: kolbrun(at)nordichouse.is