Málþing um Myndlæsi: Máltaka & læsi


15:00 - 17:30
Salur
Aðgangur ókeypis

Norræna húsið býður til málþings um myndlæsi. Í sífellt sjónrænni heimi er hæfileikinn til að túlka og skapa merkingu úr myndum nauðsynlegur þvert á fræðigreinar. Hlustaðu á  4 stuttar kynningar sem fjalla um mismunandi þætti myndlæsis.

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir kynnir Bokslukaren, samnorrænt verkefni til að efla lestur barnabókmennta á öllum Norðurlöndunum.

Ingibjörg Hannesardóttir mun kynna verkefnið SJÓNLÆSI sem miðar að því á markvissan hátt að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu við skólakerfið og auka þekkingu nemenda á menningarsögu og menningararfi.

Bergrún Íris Sævarsdóttir mun deila sjónarhorni sínu á það hvernig myndir í frásögn miðla dýpri merkingu og segja okkur oft meira en orðin ein.

Jenny Lucander fjallar um starf sitt við myndskreytingar.

Við ljúkum málþinginu með pallborðsumræðum þar sem við ræðum um það hvernig myndlæsi getur hjálpað okkur með tungumál og við lestur.

Við hlökkum til spennandi málþings með dýrmætri innsýn og líflegum samræðum. Erindin eru á íslensku og samtal og pallborðsumræður fara fram á ensku. Öll velkomin!

Aðgengi: Elissu salur er aðgengilegur hjólastólum en lágur þröskuldur er þó inn í salinn. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins og eru öll salerni kynhlutlaus. Rampur leiðir að Norræna húsinu frá bílastæði og er sjálfvirkur hnappur hjá aðaldyrum.