Hyggestund
13:00-15:00
Hyggestund 17. febrúar kl. 13-15
Velkomin í skapandi samverustund fyrir börn og foreldra á barnabóksafn Norræna hússins.
Næstkomandi laugardag verður auka efniviður í boði á barnabókasafninu í tengslum við nýju sýningarnar Norðrið og Gárur. Hægt er að teikna, sauma, búa til jökla eða ský og leiðbeiningar eru í boði á 3 tungumálum fyrir mismunandi skapandi verkefni.
Einnig er í boði skemmtilegur ratleikur til að leita að jöklamúsum og ný Montessori klifur- rennibraut hefur verið sett upp fyrir yngstu gestina.
Við mælum með að hefja heimsóknina í sýningarsalnum Hvelfingu þar sem nýr fjölskyldu bæklingur leiðir gesti í gegnum sýninguna með einföldum texta og verkefnum sem tengjast listaverkunum.
Hægt er að ljúka ferðalaginu á barnabókasafninu og klára enn fleiri skapandi verkefni á sýningunni Norðrið.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.