Fjölskyldu miðvikudagar með Svaninum: Netverslanir og neytendur


10:30
Barnabókasafn

Velkomin á fræðslu miðvikudaga samstarfi við Svaninn á Íslandi.

Sífellt fleiri reiða sig á netverslarnir til að næla sér í ýmsan varning.  Við skoðum hverju best er að vara sig á þegar verslað er við netverslanir og hverju má treysta.Fyrirlesari er Birgitta Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Svaninum á Íslandi.

Eftir kynninguna verður hægt að leika sér í skemmtilegu Línu Langsokk sýningunni “Lína, lýðræðið og raddir barna”, þar er ævintýrahús og búningar!

Aðgengi: Gengið er niður stiga frá bókasafni og aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Ókeypis er inná alla viðburði á vegum Norræna hússins.

Aðrir viðburðir