Tónleikar: Til heiðurs Edith Södergran


20:00
Salur
Aðgangur ókeypis

-SOLD OUT-

Allt snýst um ást – og með þessu tónverki senda tónlistarkonan Anna Kruse og leikkonan Stina Ekblad ástaróður til „systur“ sinnar handan tíma og rúms – Edith Södergran.

Leikkonan Stina Ekblad heiðrar ásamt Anna Kruse unga skáldið Edith Södergran, en um miðsumar 2023 voru 100 ár liðin frá því að Edith kvaddi þennan heim. Í mörg ár hafa þær skapað sýningar og tónleika byggða á litlum en innihaldsríkum ljóðaarfi Edithar. Líf Edithar Södergran varð stutt (1892–1923), en hún er engu að síður talin eitt mikilvægasta skáld sænska módernismans.

Ókeypis aðgangur er á tónleikana en nauðsynlegt að bóka sæti. Smellið hér til að bóka miða.

Plantan Bístró verður opið frá 19:00 og þar verður eingöngu boðið upp á drykki.

Sænska söngkonan og tónskáldið Anna Kruse hefur búið í Kaupmannahöfn um árabil og verið hluti af dönsku tónlistarsenunni síðan hún kom þangað sem skiptinemi við Rytmíska tónlistarháskólann árið 1998.

Anna hefur gefið út sjö plötur með ljóðum Edithar Södergran. Hún sækir innblástur í djass, þjóðlagatónlist og klassíska tónlist, sem leiðir oft til nýrra og skapandi samstarfsverkefna.

    • Edith Södergran (FI/SE): Texti
    • Anna Kruse (SE/DK): Söngur og tónsmíðar
    • Stina Ekblad (FI/SE): Söngur og upplestur
    • Jeppe Holst (DK): Gítar
    • Nicholas Kingo (DK): Píanó
    • Haukur Gröndal (IS): Saxófónn

 

Viðburðurinn er styrktur af Norræna húsinu og verkefnið nýtur einnig fjárhagslegs stuðnings frá:

  • Dansk Musiker Forbund – DMF
  • Clara Lachmanns Fond
  • A.P. Møller Fonden
  • Letterstedska Fonden
  • William Demants

Aðgengi í Elissu sal er ágætt, það er lágur þröskuldur inn í salinn. Á sömu hæð er salerni með góðu aðgengi og skiptiaðstöðu.  Að Norræna húsinu liggur rampur og við aðaldyrnar er sjálfvirkur hnappur. Frekari spurningar um aðgengismál má senda til: kolbrun@nordichouse.is