Sögustund á finnsku


13:00

Finnsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins.

Við lesum og leikum okkur á finnsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja finnsku eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur finnskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða kíkja í bókahillurnar á bókasafninu.