BÆKUR OG BRJÁLUÐ FRÆÐI


15:30 -17:00
Salur
Aðgangur ókeypis
Brjáluð fræði (e.Mad studies) er fræðasvið í mótun sem fjallar um sögu, menningu, pólitík, lifaða reynslu og baráttumál fólks sem skilgreinir sig sem „Mad”, „Psychiatric survivors”, notendur geðheilbrigðiskerfisins, fólk með reynslu af andlegum áskorunum og fleira. Brjáluð fræði, (e.Mad studies), eiga sér rætur í mannréttindabaráttu áttunda áratugarins þegar hópar fólks, beggja vegna Atlantshafsins, risu upp og börðust fyrir virðingu og réttlæti.

Orðið „Mad” í þessu samhengi er notað í umbreyttri merkingu, frá því að vera orð sem tengist skömm yfir í að tengjast stolti. Þannig hefur hugmyndin um „Mad Pride” þróast eins og „Gay Pride”. Þýðing þessara orða „Mad” og „Madness” yfir á íslensku er enn í mótun. Í dag notum við orðið „Brjálaður” yfir „Mad” og vísum þar bæði í það að vera „Brjálaður” og brjálaður af reiði. Þess vegna kynnum við í dag Brjáluð fræði.

Bækurnar og rannsóknirnar sem kynntar eru á málþinginu tengjast lifaðri reynslu fólks af andlegum áskorunum. Sú reynsla, skoðuð út frá sjónarhorni fólksins sjálfs, er eitt af viðfangsefnum Brjálaðra fræða (e. Mad Studies).

Hvað: Málþing um Brjáluð fræði, rannsóknir kynntar og rithöfundar lesa úr verkum sínum.

Hvar: Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík
Hvenær: 1. mars milli klukkan 3.30 – 5 eftir hádegi (15:30 – 17:00)
Tungumál: Íslenska og íslenskt táknmál

DAGSKRÁ:
Brjáluð fræði og rannsókn um bækur

Um fræðilegt samhengi og uppruna Brjálaðra fræða (Mad studies) og rannsóknina „Upplifun fólks af því að gefa út sjálfsævisögulega bók um andlegar áskoranir”.
Gunnhildur Una Jónsdóttir er meistaranemi í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og með MFA í myndlist frá Carnegie Mellon háskóla.

Boðaföll: Nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum
Í erindinu segir Fanney frá því hvernig bókin Boðaföll varð til og mótaðist í samvinnu nokkurra höfunda. Hún mun lesa valda kafla úr bókinni. – Fanney Björk Ingólfsdóttir er með BA í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og er meistaranemi í ritlist við Háskóla Íslands.
Sjónarhorn gagnrýninnar kenningar á innleiðingu jafningjastuðnings og batamiðaðrar hugmyndafræði.
Jafningjastuðningur hefur verið innleiddur í Geðþjónustu Landspítala í áföngum frá 2021. Þessi breyting felur í sér að fyrrum notandi geðheilbrigðisþjónustu verður starfsmaður deilda og eininga. Rannsóknir sýna að erfitt getur reynst að innleiða jafningjastuðning þar sem innleiðing batamiðaðrar hugmyndafræði hefur ekki náð tilskyldum árangri. Í þessu erindi verður mannauðsbreytingin skoðuð með sjónarhorni gagnrýninnar kenningar og geðheilbrigðiskerfið skoðað sem valdakerfi.
Nína Eck er félagsráðgjafi (MA), teymisstjóri jafningja á LSH og jafningjaþjálfari.

Úr hæstu hæðum niður í dýpstu djúp

Um uppsprettur Lífið er staður þar sem bannað er að lifa og Hreinsunareldur. Í erindinu fjallar Steindór stuttlega um tilurð bókanna Lífið er staður þar sem bannað er að lifa (Veröld 2023) og Hreinsunareldur, sem er væntanleg ljóðabók, og les upp úr báðum verkunum. – Steindór J Erlingsson, líffræðingur (BSc) og vísindasagnfræðingur (PhD).
Aðgengi:
Norræna húsið hefur ágætt aðgengi í flest rými hússins. Að húsinu liggur hjólastólarampur og inni í húsinu er lyfta sem fer niður í sýningarrýmið Hvelfingu. Stigi niður í barnabókasafnið frá bókasafninu sjálfu en fyrir hjólastóla er aðgengilegt inná barnabókasafnið frá Hvelfingu. Elissa (salur) hefur gott aðgengi.

Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins og eru öll salerni kynhlutlaus.

Skynvænt rými er í boði á meðan að á viðburðinum stendur. Það er staðsett nálægt viðburðarýminu og verður merkt sérstaklega. Viðburðirnir verða á íslensku og túlkaðir á íslenskt táknmál. 

Strætó: 15 (stoppistöð: íslensk erfðagreining) EÐA 1, 3 og 6 (stoppistöð: Háskóli Íslands)