Fara í innihald

Urbonas Studio 

Urbonas Studio, sem er stofnað af Nomeda & Gediminas Urbonas, er þverfagleg rannsóknarstofnun sem stuðlar að samtali milli ólíkra þekkingarsviða og listsköpunar í þágu verkefna sem umbreyta borgarrýmum og vinna með samfélagslegt ímyndunarafl. Í samstarfi við sérfræðinga úr ólíkum menningar- og faggreinum þróar stofan rannsóknarlíkön sem sameina efni og aðferðir úr nýmiðlun, borgarfræðum, félagsvísindum, fræðslu og vistfræði.




Swamp Intelligence 
Innsetning; veggur, landslagsmódel, gervigreind, 2019
Inni í veggnum er vistkerfi þar sem náttúruleg form renna saman við stafrænar lífverur. Swamp Intelligence byggir á NoPlace Neural Network (NNN), afbrigði af skilyrtri gervigreind sem er notuð til að kanna getu tauganeta til að mynda nýja og frumlega myndgerð úr tveimur gagnasöfnum: annars vegar lífverum úr mýravistkerfum og hins vegar byggingarformum. Kerfið nýtir white noise til að skapa sambland náttúru, byggingarlistar og tækni, framandlegrar í mannlegri skynjun, og endurspeglar þannig dularfullt eðli mýra sem jaðarrýma vistfræðilegra umbreytinga.