Peder Bjurman er listamaður, rithöfundur og leikstjóri. Með því að sameina myndmál og tónlist við abstrakt- eða frásagnarkennda texta blandar hann gjarnan því harmræna, ljóðræna og kómíska. Hann leggur jafna áherslu á mikilvægi ljóss, hljóðs, leikmyndar og frammistöðu leikara og notar oft háþróaða og glænýja sviðstækni. Verk hans eru gjarnan unnin í nánu samstarfi við leikhópa eða aðra listamenn, tónskáld, hönnuði og tæknifyrirtæki.
Slow Walker
Stafræn hreyfimynd, staðsetningarmiðuð upplifun/göngutúr, ljósmyndun
Slow Walker notast við sýndarveruleika og sýnir örsmáar tardigrades sem risavaxnar í landslaginu í kringum Norræna húsið. Þessar risastóru verur hreyfast löturhægt, virðast svífa í landslaginu og bregðast við nærveru áhorfenda. Tardigrades eru örsmáar lífverur sem þola öfgakenndar hitabreytingar, allt frá algjöru frostmarki til mikils hita. Samt sem áður hafa loftslagsbreytingar mikil áhrif á búsvæði þeirra, mýrar og mosabreiður, sem vegna hitabreytinga eru í útrýmingahættu. Þessar risavöxnu og hverfulu verur “Slow Walker” sveima á milli lífs og dauða sem tákn um brothætt vistkerfi, dularfullar verur og sem skúlptúrísk form.
Skannaðu qr kóðann til að upplifa listaverkið:
