Johanna Seelemann er hönnuður með aðsetur í Reykjavík og Leipzig. Hún starfar á sviði vöruhönnunar, rýmisuppsetninga og efnisrannsókna. Í vinnu sinni afkóðar hún hversdagslega hluti til að afhjúpa falin framleiðslukerfi, birgðakeðjur og vistfræðilegar hringrásir. Verk hennar hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi, m.a. í Design Museum London, V&A og Villa Noailles, af tímaritinu Wallpaper hefur hún verið nefnd “skapandi leiðtogi sem víkkar út möguleika hönnunar í dag”. Hún hefur verið tilnefnd til Íslensku hönnunarverðlaunanna 2025, Dutch Design Awards Emerging Talent Award 2025 og Ralph Saltzman Prize 2025.
Oase
Ógljáður terrakotta leir, trjárætur, 2025 Oase leggur til inngrip sem bætir aðstæður trjáa í borgarrýmum og byggir á fornri lágtækni vökvunaraðferð. Ógljáðar terrakottakrukkur virka sem vatnsgeymar. Þegar þær eru grafnar nálægt tré leyfir gegndræpi efnisins rótum trésins að draga í sig raka. Borgartré búa við aðstæður sem eru mótaðar fyrir fólk og bíla. Þrátt fyrir mikilvægi þeirra fyrir vistkerfi og heilsu borga eru tré oft jaðarsett og litið á þau sem „götuhúsgögn“. Þetta leiðir til ýmissa áskorana fyrir heilsu trjáa, svo sem of þétt yfirborð, vatnsskort, ofhitnun, vindgöng, þjappaðan jarðveg og takmarkað rótarsvæði.
Verkið var upphaflega pantað af MAKK Museum í Köln.