Fara í innihald
Sýningin Himna: Goðsagnir & Skáldskapur úr Jörðu skoðar endurnýjun jarðvegs, grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, viðhaldast og endurnýja sig. Vísindalegar og pósthúmanískar nálganir líta í auknum mæli á jarðveg sem sjálfstætt lifandi kerfi: kvikt, samlífandi ferli fremur en dauða auðlind. Jarðvegur felur í sér bæði lífsgefandi vöxt og mikilvæga hringrás niðurbrots og rotnunar. Vegna ógagnsæis hans og ómannlegra tímaþátta býður jarðvegur upp á getgátur, goðsagnir og frásagnir samhliða vísindalegri þekkingu. Með því að leiða saman samtímalistamenn af ólíkum toga sýnir Himna jarðveg sem fjöltegunda arkíf og lifandi minni og skapar rými fyrir endurnýjuð jarðnesk tengsl handan mannmiðjunar.

Nokkur orð frá sýningarstjóranum Thomas Pausz:
Sýningin Himna er afrakstur langtímasamtals við starfsfólk Norræna hússins, listamennina sem eiga verk á sýningunni, hönnuði og fræðimenn. Hún mótaðist smám saman út frá hugmyndinni um að skáldskapur og fabúlering geti víkkað vistfræðilega meðvitund um jarðvegsmótandi ferla. Í stað þess að sýna jarðvegsrannsóknir á listrænan hátt flétta verkin saman nýjar frásagnir og jarðvegsmýtólógíur: vonaróvætti, samlífandi ferðalanga og gegndræp skjól.
Flókið samband jarðvegs og sagna, jarðvegur sem geymsla minninga, hefur verið lýst á áhrifaríkan hátt af Tim Ingold, sem skilgreinir jarðveg sem palimpsest, lifandi himnu þar sem grafinn fortíðarheimur rís stöðugt upp í nútímann. Í þessari sýningu hrinda raddir fortíðar líkömum samtímans af stað: fornar minjar ferðast í tíma til að bjarga trjám í bílamiðaðri borgarmenningu okkar, og fornar lífverur taka sér bólfestu í stafrænu rými allt í kringum okkur.


Thomas Pausz er sýningarstjóri og rannsakandi sem starfar á mörkum gagnrýninnar vistfræði, myndlistar og vistfræðilegrar skáldskaparritunar. Himna er þriðja sýningin sem hann sýningarstýrir í Norræna húsinu í Reykjavík, á eftir Re-Mapping the Arctic og Forms of Life.