Lucrezia Costa er ítölsk myndlistarkona með aðsetur í Reykjavík. Hún er með BA í ljósmyndun og lauk nýverið MFA frá Listaháskóla Íslands. Verk hennar spanna skúlptúr, innsetningar og þátttökulist og kanna hlutverk listar í því að takast á við rofin tengsl milli manna, landslags og annarra lífvera. Hún vinnur með ferla endurheimtar og viðgerðar í efnislegu, vistfræðilegu og félagslegu samhengi og beinir sjónum að bæði tengslamissi og möguleikum á endurnýjuðum tengslum.

Landsleg
Staðbundin úti-innsetning; torf, viðarstrúktúr, tjaldefni Landsleg rannsakar tengsl milli mannslíkamans og landsins. Verkið dregur innblástur úr Carrier Bag Theory of Fiction eftir Ursula K. Le Guin og rannsóknum Guðrúnar Jóhannesdóttur á líkamsbundinni þekkingu. Upphafspunkturinn er íslenska orðið landsleg, fornyrði fyrir landslag sem einnig bergmálar orðið leg, sem merkir móðurlíf eða hvíldarstaður. Verkið er skjól í formi skála, grafið í jörðina, myndað úr lögum af torfi, mosa og plöntum. Gestir geta gengið inn í verkið, legið í því eða dvalið tímabundið. Landsleg umfaðmar líkamann og gefur beina snertingu við jarðveginn, opnar skynrænt rými þar sem tengsl við landið birtast í gegnum snertingu, þunga og jarðtenginu.