Fara í innihald

Linda Boļšakova 

Linda Boļšakova rannsakar tengsl manna við umhverfið og dregur fram hliðstæður milli mannlegra og ómannlegra líkamsforma. Verk hennar leitast við að afhjúpa tengsl og efla tilfinningu fyrir tilheyrandi vistkerfum og því víðfeðma samfélagi lífvera sem deila jörðinni. Hún leitast einnig við að skapa rými fyrir samkennd og menningarlega sjálfbærni. Vinnan er mótuð af hlutbundinni verufræði, nýefnisstefnu, vistfemínisma og ferlisheimspeki, og byggir á viðurkenningu á virkni og hlutfallslegu jafnræði efna og annarra ómannlegra vera.



For as Long as Mountains Dance
Steinefni, Mannslíkamar, vatnsgufa, hljóð og prentað efni.
Er mögulegt að dansa með því jarðfræðilega? Ef við hugsum um dans sem hreyfingu efnislegra líkamsgerða, erum við þá ekki að dansa nú þegar? Þeir kraftar sem hreyfa við jörðinni, svo sem þyngdarafl og hiti, hreyfa einnig líkama okkar. Á sama hátt flæða steinefni, sem mynduðust við hina ýmsu jarðfræðilegu ferla, nú um holdlega líkama okkar. Þetta verk, sem þróaðist með langvarandi vinnu á jarðhitasvæðum, á jöklum og hraunbreiðum Íslands, leggur til annarskonar túlkun á fjöllum og hinu jarðfræðilega, þessum djúptímaverum, ekki sem stöðnu efni í líkingu við skúlptúr, heldur sem mikilfenglegar verur í líki gjörnings. Það er tilraunakennd upphitun fyrir þennan dans, sem á sér stað þvert á tíma og takta sem eru mun víðfemari en okkar líftími. Mögulega hófst þessi gjörningur fyrir milljónum ára og mun halda áfram að flæða í gegnum líkama okkar og umbreytast í aðra líkama, svo lengi sem fjöllin dansa.