Fara í innihald

Eglė Budvytytė 

Eglė Budvytytė er listakona sem starfar á mörkum myndlistar og gjörningalistar. Hún nálgast hreyfingu og látbragð sem verkfæri til að umbylta ríkjandi normum, kynjakerfum, félagslegum hlutverkum og þeim frásögnum sem móta opinber rými. Í verkum sínum, sem spanna söng, ljóð, myndbönd og gjörninga, rannsakar hún kraft samstöðu, viðkvæmni og tengslin milli líkama, áhorfenda og umhverfis.




Songs from the Compost, Mutating Bodies, Imploding Stars
4K myndband, 28 mín, 2020
Verkið er unnið í samstarfi við Mariju Olšauskaitė og Juliju Lukas Steponaitytė. Verkið Songs from the Compost kannar á dáleiðandi hátt ómannleg meðvitundarform og mismunandi víddir samlífs: samháð, uppgjöf, dauða og niðurbrot. Myndbandið er tekið upp í furuskógum og sandöldum Kúróníustrandarinnar og í því afhjúpast smám saman gjörningur í gegnum sérsamda tónlist sem miðlar löngunum veru sem í myndbandinu umbreytist milli kynja, radda og handan mannlegrar líkamsgerðar. Í verkinu má sjá ungmenni úr nærsamfélaginu ásamt danshöfundinum Mami Kang. Hreyfingin hafnar hinum lóðrétta mannslíkama með því að fella hann inn í landslagið þannig að líkamarnir dragast stöðugt að jörðinni og hver að öðrum. Í myndinni má heyra dáleiðandi rödd sem dregur innblástur frá skrifum líffræðingsins Lynn Margulis og vísindaskáldsagnahöfundarins Octaviu Butler um samlífi, stökkbreytingar og blendinga.

Verkið var styrkt af: Nida Art Colony, 4Cs -From conflict to conviviality through culture, RIBOCA2, Mondriaan Funds, Lithuanian Culture Council