Viden som virker i praksis – fremtiden i nordisk velferd og forslag til økt samarbeid


12:00 - 13:30

I anledning av publisering av en ny rapport av Árni Páll Árnason om nordisk velferd, inviterer Norden i Fokus til  et åpent møte i Norden, 18. oktober kl. 12-13:30 for å diskutere fremtiden i nordisk velferd og forslag til økt nordisk samarbeid. Mødet forgår på islandsk.

Þann 16. október afhendir Árni Páll Árnason skýrslun Þekking sem nýtist: tillögur um eflt norrænt samstarf á sviði félagsmála í Stokkhólmi. Af því tilefni mun Árni Páll einnig kynna skýrsluna sérstaklega á Íslandi þann 18. október kl. 12 í Norræna húsinu. Farið verður yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. Hverjar verða helstu áskoranir í velferðarþjónustu á næstu árum? Er til eitthvað sem heitir Norrænt velferðarmódel? Hvar stendur Ísland í norrænum samanburði?

Síðastliði sumar tilkynnti Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, að hann hefði fengið Árna Pál Árnason, fyrrum félags- og tryggingamálaráðherra Íslands, til að vinna stefnumótandi úttekt á samstarfi Norðurlandanna á sviði félagsmála.

Úttektinni er ætlað að greina þær áskoranir sem Norðurlöndin standa frammi fyrir á sviði velferðarmála og hvernig hægt sé að nýta norrænt samstarf til að mæta þeim.

Úttektin er sú sjötta sem unnin er í norrænu samstarfi. Thorvald Stoltenberg reið á vaðið með svonefndri Stoltenbergskýrslu um sóknarfæri í norrænu samstarfi á sviði varnar- og öryggismála. Þá vann Bo Könberg stefnumótandi úttekt á samstarfi um heilbrigðismál og Poul Nielson á vinnumálasamstarfinu. Unnið er að úttektum á samstarfi í orkumálum og umhverfismálum. Gert er ráð fyrir að Árni Páll ljúki verkefninu um mitt næsta ár.

Að loknu erindi Árna Páls taka við pallborðsumræður um úttektina og málaflokkinn. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða, auk Árna Páls: Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður og fyrrum félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fundarstjóri er Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins.

Fundurinn fer fram í sal Norræna hússins 18. október kl. 12-13:15.

Fundurinn er öllum opinn og fer fram á íslensku.