Nordens dag


17:15

Nordens dag

I anledning af Nordens dag inviterer Foreningen Norden og Nordens Hus til program i Nordens Hus torsdagen den 23. marts kl 17:15 – 18:30.

Program: 

Bogi Ágústsson, formaður Norræna félagsins býður gesti velkomna.

Björg Eva Erlendsdóttir, formaður Reykjavíkurdeildar Norræna félagsins, ræðir um samstarf Íslands og Færeyja og segir frá fyrirhuguðu höfuðborgarmóti sem haldið verður í Þórshöfn í Færeyjum seinna á árinu.

Linda Vilhjálmsdóttir les uppúr  ljóðabók sinni “Frelsi” sem er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Um bókina segir á vef Norrænu ráðherranefndarinnar:  Frelsi er óvenju áleitin og áhrifamikil ljóðabók með nafnlausu inngangsljóði og þremur tölusettum ljóðabálkum sem allir snúast um leiðarminnið frelsi, afbökun okkar á hugtakinu og upplifun okkar af því.

Tónlistaratriði: Ingi Gunnar Jóhannsson flytur lagið “Ens i Nord” sem nokkrir Vísnavinir á Norðurlöndum ætla að flytja í hverju landi fyrir sig þennan dag.

Inga Dóra Markussen, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, segir frá stjórnmálum í Grænlandi og stöðu Grænlands í norrænu og vestnorrænu samstarfi.

Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdarstjóri Norræna félagsins, segir frá Eystrarsaltssamstarfi frjálsra félagasamtaka og alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Reykjajanesbæ í maí.

Hjertelig velkommen!