Fara í innihald

Ilona Sagar


Verkið Other Actors rannsakar tengsl líkama og bygginga, heilsu og arkitektúrs út frá Paimio-heilsuhælinu í Finnlandi. Heilsuhælið, hannað af Alvar og Aino Aalto og reist á árunum 1929–1933, markar róttæka breytingu á hönnun fyrir heilbrigðisþjónustu. Aalto-hjónin hugsuðu bygginguna sem „verkfæri til lækninga“ og lögðu til arkitektúr sem tæki mið af láréttu sjónarhorni hins sjúka fremur en lóðréttri líkamsstöðu hins heilbrigða. 
Þegar tökur fóru fram stóð heilsuhælið á mikilvægum tímamótum í umbreytingu sinni úr sjúkrahúsi í nýtt hlutverk. Á meðan endurreisn hússins stendur yfir kannar myndin stöðu þess sem byggingar í breytingarferli. Hugmyndir um umönnun og viðhald eru þar í brennidepli. Eftir því sem tíminn líður og áherslur breytast, tekur viðhald, verðmætamat og það sem eftir stendur einnig á sig nýjar myndir.  
 

Í verkinu koma fram þekktir fræðimenn og kenningasmiðir þau Beatriz Colomina, Heini Hakosalo og Peter Stadius. Other Actors beinir sjónum að því hvað verður um byggingararfleifð módernismans, arfðleið sem enn lifir í menningarlegu ímyndunarafli okkar, og hvernig hægt er að skapa rými fyrir þau sem alla jafna leynast á bak við sjónræna veggi hans. 
Sagar vann náið með fólki sem hefur búið og starfað á Paimio-heilsuhælinu, þar á meðal fyrrverandi viðhaldsstarfsfólki, starfsfólki húsgagnaframleiðandans Artek og arkitektum úr hönnunarteymi Aalto-hjónanna sem enn eru á lífi. Frásagnir þeirra miðla raunverulegri þekkingu á byggingunni og eiga náið samtal við skjalasafnið og mikilvægi þess. Other Actors byggir jafnframt á samstarfi við verkfræðideild Aalto-háskóla, Kalasatama-klínikuna fyrir óskráða innflytjendur, auk rannsóknarhóps um berkla við Leicester-háskóla og Imperial College London. Verkið varpar þannig ljósi á brýnt samtímasjónarhorn á sjúkdóm sem oft er litið á sem leifar liðins tíma.  


Fit Test er hljóðverk eftir Ilonu Sagar og Flis Holland, samið í sameiningu. Verkið skal upplifa í Paimio-stólnum, sæti sem upphaflega var hannað til að auðvelda öndun berklasjúklinga. Hljóðverkið fléttar saman persónulegum og sögulegum frásögnum og er byggt upp eftir skráningarkerfi sem notað er við flokkun ljósmynda í skjalasafni Paimio-heilsuhælisins.. Verkið ferðast um sundurleit skráningarform raddar, minninga og læknisfræðilegs skrifræðis. 

Bio

Ilona Sagar er listamaður og kvikmyndagerðarmaður búsett í London og starfandi við Somerset House Studios. Með áherslu á skjalasafnsrannsóknir og þverfaglegt samstarf rannsakar hún í verkum sínum hvernig borgaraleg og félagsleg sjálfsmynd verður til og mótast, og hvernig tekist er á um hana, í gegnum innviði heilbrigðis, tækni og líkamans. Meðal nýlegra verkefna hennar er Other Actors (Stanley Picker Fellowship, 2025), sem nú er sýnt í Architecture and Design Museum Helsinki, Norræna húsinu í Reykjavík og Röhsska Museum Gautaborg. 
Verk Sagar hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi, meðal annars á 24. alþjóðlegu sýningunni á Triennale Milano, Serpentine Gallery, Barbican Art Gallery, Hayward Gallery, Wellcome Collection, CCA Glasgow, Villa Arson Centre National d'Art Contemporain og Art Rotterdam. Árið 2027 mun hún vinna að sameiginlegu rannsóknarverkefni með taugalæknum við King's College London og University of Eastern Finland í samstarfi við Saastamoinen Foundation. Meðal væntanlegra verkefna eru samstarfsverkefni með Cement Fields og einkasýning með tilheyrandi dagskrá hjá Somerset House Studios. 


Myndir á þessari síðu: Ilona Sagar, stillla úr verkinu Other Actors, 2025
portrait of a woman. She has black middle lenght hair and red lipstickIlona Sagar. Listamaður

Listamenn:

Elina Brotherus
Ilona Sagar