Hvernig teikna arkitektar þegar þeir teikna fyrir sjálfa sig? Ljósmyndaröðin Í húsi arkitektsins var unnin í Aalto-húsinu (1935–36), heimili Alvars, Aino og Elissu Aalto við götuna Riihitie í Munkkiniemi-hverfinu í Helsinki.
Undanfarin ár hefur Brotherus ljósmyndað byggingar eftir Alvar Aalto og kannað hvernig fólk upplifir þessi rými á persónulegan hátt. Lög tímans, sögur og tilfinningar fléttast saman og skapa tengsl milli einstaklingsins og arkitektúrsins.
Arkitektúr Aalto minnir Brotherus á leikmynd þar sem samtengd rými taka hvert við af öðru og skapa umgjörð fyrir mannlega nærveru. Í stað þess að sýna rýmin auð setja ljósmyndir hennar samtal hins (skáldaða) íbúa og hússins á svið. Konurnar í verkunum opna dyr heimila sinna og bjóða áhorfandanum að upplifa arkitektúrinn frá þeirra sjónarhorni. Í ljósmyndaröðinni birtast jafnframt ummerki Alvars, Aino og Elissu Aalto og gefa okkur tilefni til að ímynda okkur hvernig þau sjálf gætu hafa lifað og starfað í þessum rýmum.

Bio
Elina Brotherus er listamaður sem vinnur með gjörninga í gegnum ljósmyndun, myndbandsverk og fleiri miðla. Í verkum sínum rannsakar hún listasögu, sjálfsævisögu, leik og arkitektúr, gjarnan með femínískri endurtúlkun. Hún notar eigin líkama og persónu sem fyrirmynd og aðalsöguhetju verkanna. Helstu miðlar hennar eru ljósmyndir í stórum sniðum og tilraunakennd stutt vídeóverk. Elina Brotherus er einn af þekktustu listamönnum sinnar kynslóðar í Norður Evrópu.
Elina Brotherus býr og starfar í Helsinki í Finnlandi og Avallon í Frakklandi. Hún er með MA-gráðu í ljósmyndun frá Aalto Háskólanum og MSc-gráðu í efnafræði frá Háskólanum í Helsinki. Hún hefur meðal annars hlotið Artist Professorship Grant frá Arts Promotion Centre Finland (2022–2026), Carte blanche PMU í Frakklandi (2017), finnsku ríkisverðlaunin í ljósmyndun (2008) og Prix Niépce-verðlaunin frá Gens d’image í Frakklandi (2005). Verk hennar eru í yfir 80 opinberum safneignum, þar á meðal Centre Pompidou í París, LACMA í Los Angeles, Louisiana Museum of Modern Art í Danmörku og MAXXI í Róm.
Elina Brotherus hóf að sýna verk sín á alþjóðavettvangi árið 1997. Meðal nýlegra einkasýninga hennar á stofnunum eru Centre Pompidou í París (2017), Kunst Haus Wien í Vín og Listasafn Íslands í Reykjavík (2018), Férnan Gómez í Madrid og Villa Vauban, Musée d’Art de la Ville de Luxembourg (2019), Weserburg Museum of Modern Art í Bremen (2020), Ateneum Art Museum, hluti af finnska þjóðlistasafninu, í Helsinki og FRAC Bourgogne í Dijon (2022), Museum Schloss Moyland í Bedburg-Hau og ARTER í Istanbúl (2023), Kunstsilo í Kristiansand og Kunsten Museum of Modern Art í Álaborg (2025), og Museum für Photographie Braunschweig (2026).

Ljósmyndir á þessari síðu: Elina Brotherus, Watering Plants og Breakfast,
úr seríunni Í húsi arkitektsins, 2020