Vídeó- og tónlistarverkið Homebody rannsakar samband vitundar, mannslíkamans og heimilisins. Verkið var tekið upp í Villa Skeppet, minnsta einkahúsi sem Alvar Aalto hannaði, og þar eru „heimilis-líkamarnir“ fjórir flytjendur sem hreyfast á milli einstaklingsbundinnar nærveru og sameiginlegrar heildar. Daglegar langanir þeirra, gremja og nánd þróast í gegnum súrrealísk en blíð tónverk. Með notkun ASOCS (Authentic Stream-of-Consciousness Singing), líkamsmiðaðrar aðferðar sem listamaðurinn hefur þróað, gefur verkið visku líkamans rödd og hjálpar til við að afhjúpa grafinn sannleika um sjálfið sem er í senn hrífandi og órökrétt. Um leið raskar verkið kyrrð og yfirvegun umhverfis síns, módernísku byggingarlistarbákni eftir Aalto, með því að afhjúpa órökrétt eðli mannlegrar hugsunar sem þar á sér stað.

Homebody er samstillt, 45 mínútna vídeóverk á þremur rásum sem endurtekur sig samfellt. Hver skjár sýnir ólík herbergi og sjónarhorn úr húsinu í sýnilegum rauntíma. Flytjendurnir fara á milli skjánna þriggja og skapa þá tilfinningu að þeir fari um húsið og í gegnum marga ólíka veruleika samtímis. Innsetningin býður upp á stækkaða sýn á heimilislífið, þar sem lítið gerist þar til sköpunin verður til af sjálfu sér og brýst fram í söng; gestir, bæði þeir sem eru velkomnir og óboðnir, umbreyta heimilinu; og smávægilegar athafnir hafa áhrif sem berast í gegnum allt kerfið.

Leaky Teeth fjallar um endurheimt líkamlegrar þekkingar sem lykil að skilningi á rofnu sambandi okkar við náttúruna. Í miðju verksins er skálduð persóna að nafni June og hola í viskutönn hennar sem hýsir hóp forsögulegra manna. Út frá rannsóknum á hellalist frá steinöld og hinu líklega nánu og flæðandi sambandi þessara fyrstu listamanna við umhverfi sitt varð til tilraunakennd frásögn sem endurhugsar líkamlegan sársauka. Hún gerist innan viskutannar aðalpersónunnar, þar sem hrörnandi hellir úr pappamassa myndar sviðsmyndina. Í skörpum andstæðum við hellinn á líf June sér stað í glæsilegu en lekandi módernísku einbýlishúsi, Maison Louis Carré, sem arkitektinn Alvar Aalto hannaði.
Lekandi tönn June og lekandi heimili hennar gefa í skyn heimssýn þar sem allt, þar á meðal líkamar okkar, er gegndræpt; við verðum til og endursköpumst í, og í gegnum, samband okkar við hinn efnislega heim. Það eru göt alls staðar; tími, rými og líkamar leka inn í hvert annað og drekka hvert annað í sig. Við erum rækilega samofin – hvort sem okkur líkar það eða ekki.
Bio
Dafna Maimon er finnskur listamaður, búsett í Berlín og Finnlandi. Hún vinnur á mörkum gjörninga, myndbands, málverks, teikningar og gagnvirkra innsetninga. Í verkum sínum rannsakar hún hvernig horft er fram hjá þekkingu líkamans eða hún bæld í samtímasamfélagi. Með sviðsettum félagslegum aðstæðum, líkamlegum ferlum og rýmum sem hugsuð eru sem lifandi lífverur kannar hún tengsl líkama, sálarlífs og umhverfis, og tekst meðal annars á við spurningar um sjálfsmynd, að tilheyra, útskúfun og umönnun.
Húmorísk og oft absúrdísk verk hennar sækja djúpt í frásögn manneskjunnar og í hylki hennar – mannslíkamann. Í grunninn er listsköpun hennar leit að nýjum sjónarhornum á þekkingu og getu líkamans, sem geta stuðlað að sjálfsskoðun, úrvinnslu og hreinsun.
Verk hennar hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi í stofnunum á borð við Kiasma Museum of Contemporary Art í Helsinki, Kunst-Werke í Berlín, PS1 MoMA í New York, Museum of Contemporary Art Antwerp í Antwerpen, Helsinki Biennial í Helsinki, Mahj Jewish Museum í París, Kim Center Contemporary Art í Riga, 1646 í Haag, BOAN1942 í Seoul, Salt í Istanbúl, Center for Maine Contemporary Art í Rockland, Maine, NBK í Berlín og Gallery Wedding í Berlín.