Fit Test er hljóðverk eftir Ilonu Sagar og Flis Holland, samið í sameiningu. Verkið skal upplifa í Paimio-stólnum, sæti sem upphaflega var hannað til að auðvelda öndun berklasjúklinga. Hljóðverkið fléttar saman persónulegum og sögulegum frásögnum og er byggt upp eftir skráningarkerfi sem notað er við flokkun ljósmynda í skjalasafni Paimio-heilsuhælisins.. Verkið ferðast um sundurleit skráningarform raddar, minninga og læknisfræðilegs skrifræðis.
Bio
Flis Holland (UK/FI) notar myndbands- og hljóðleiðsagnir til að rekja árekstra trans, fatlaðra og annarskonar líkama (trans, crip and celestial bodies). Verk háns leitast við að losa um tengslin milli þess að sjá líkama og að þekkja hann, og kanna markvissa beitingu neitunar. Árið 2025 vann Holland hljóðverkið 25/7 fyrir Helsinki-borg í samstarfi við tónskáldið Juuli Haverinen. Hán var gestalistamaður í Everyday Priorities: Art, Technology & Accommodations á vegum Metro54 (NL) og M-cult (FI). Einkasýning Holland, Off-Colour, var haldin í Listasafni Helsinki árið 2023. Meðal nýlegra samsýninga eru LIAF 2024, Oulu Art Museum, Pori Biennial og sýningarvettvangurinn Pitted Dates.