Fara í innihald
Frá líkama til rýmis til listar 

Þegar ég bauð Elinu Brotherus að vera með sýningu í Maison Louis Carré, einu byggingu Alvars og Elissu Aalto í Frakklandi, spurði hún hvort hún mætti dvelja nokkra daga í húsinu og taka myndir. Við gætum hugsanlega notað eina til tvær ljósmyndir á sýningunni. Í staðinn varð þessi stutta dvöl árið 2015 kveikjan að nýrri syrpu mynda sem listakonan hefur þróað síðan í tengslum við ýmsar byggingar, þ.á.m. eftir Aalto-hjónin. Nokkrum árum síðar tók Dafna Maimon stuttmynd sína Leaky Teeth í húsinu. Í miðjum heimsfaraldri og útgöngubanni dvaldi hún þar ásamt leikurum og tökuliði, einangruð frá umheiminum. Önnur stuttmynd sem var tekin þar og hefur verið sýnd víðar er Lighthouse eftir Eevu-Riittu Eerola og Jenny Toikka, þar sem húsið er leiksvið persóna í samsíða veruleikum.  
Margir listamenn hafa skapað verk sérstaklega fyrir rými hússins. Það var byggt fyrir listaverkasalann og safnarann Louis Carré í lok 6. áratugarins og hannað af Aalto til að hýsa og sýna list. Við undirbúning sýningar, þegar því verður við komið, dvelja listamenn gjarnan á staðnum í nokkra daga, til þess að upplifa bygginguna: birtuna, efnin, rýmið, umhverfið. Þessi líkamlega nálgun er mjög mikilvæg til að skapa raunverulegt samtal við arkitektúrinn. Annað dæmi um líkamleg tengsl er þegar dansarar eða gjörningalistamenn koma fram í húsinu. Flutningur þeirra er bein afleiðing þeirra áhrifa sem rýmið og ramminn hefur á líkamann. 
Íbúðarhús Aalto-hjónanna bjóða upp á innilega og sterka tengingu gegnum gæði hönnunar og notkun á náttúrulegum, „mannvænum“ efnum. Þau eru líka þrungin sögu þeirra sem þar lifðu. Þegar listamenn ná að tengja saman upplifun og holdgerfingu sálar byggingarinnar verður til list sem brúar sannarlega bilið milli myndlistar og byggingarlistar. 

Ásdís Ólafsdóttir 
Forstöðumaður Maison Louis Carré 
Portrait of a woman with short red hair and blue eyes.
Ásdís Ólafsdóttir. Forstöðumaður, Maison Louis Carré. Ljósmynd: Lucie Jean  

Artists:

Elina Brotherus
Ilona Sagar