Fara í innihald

Þorvarður Árnason

Þorvarður Árnason er umhverfisfræðingur og listamaður sem hefur helgað síðustu tvo áratugi því að skrá breytingar á Vatnajökli. Nálgun hans má lýsa sem samþættri sjónrænni rannsókn, blöndu af list og vísindum sem skoðar áhrif loftslagsbreytinga ekki aðeins á náttúruna sjálfa heldur einnig á mannfólkið sem lifir í samspili við hana. ⁠


Hoffellsjökuls serían byggir á langtímaverkefni sem stóð í átta ár samfleytt. Verkefnið fól í sér endurtekna ljósmyndun, eina mynd á mánuði, á ákveðnum stað fyrir framan upphaflega jökuljaðarinn til að skrásetja hörfun hans yfir tíma. Vinnan hófst í febrúar 2008 og lauk í desember 2015 og leiddi af sér alls 77 myndir. Röðin fangar dramatíska hörfun skriðjökulsins og umbreytingu landslagsins í kring. Með því að snúa aftur á sömu staði ár eftir ár skapar Þorvarður áhrifaríka sjónræna heimild sem gerir hörfun jökulsins bæði mælanlega og tilfinningalega. Þessi framsetning á bráðnun Hoffellsjökuls er ekki aðeins vitnisburður um hvað við höfum misst, heldur einnig ákall um að endurmeta hvernig við mætum viðkvæmum vistkerfum náttúrunnar.

Í kvikmyndum sínum býður Þorvarður upp á umlykjandi upplifun af Vatnajökli, hinu víðfeðma jökulkerfi í suðausturhluta Íslands. Með fjölbreyttum sjónarhornum, allt frá nærmyndum af áferðum og bráðnandi ís til víðra loftmynda sem sýna jökulinn í öllu sínu veldi, hvetja myndböndin áhorfendur til að upplifa landslagið bæði efnislega og sjónrænt. Verkið færist á milli ramma á jörðu niðri, fugls á flugi og sjónarhorna sem liggja á mörkum tilrauna og heimildar, og gera þannig sýnileg þau blæbrigði sem móta upplifun af jökullandslagi.

Uppsetningin hvetur gesti til að stíga fyrir aftan tjaldið, staðsetja líkama sinn innan varpaðrar myndar og verða um stund hluti af síbreytilegu landslaginu sem birtist á yfirborði þess.

Æviágrip

Dr. Þorvarður Árnason er leiðandi fræðimaður á sviði umhverfismála og einn af stofnendum Environmental Humanities á Íslandi. Fræðileg bakgrunnur hans er þverfaglegur og spannar líffræði, kvikmyndagerð umhverfisspeki og stjórnmál. Rannsóknir Þorvarðar á síðustu þremur áratugum hafa náð yfir fjölbreytt svið, en á síðustu árum hefur megináherslan verið á þverfaglegar loftslagsrannsóknir og miðlun þeirra. Sú áhersla endurspeglar tvíþætt hlutverk hans sem forstöðumanns Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði og dósents í þverfaglegum umhverfisfræðum við Háskóla Íslands. 

Listrænn ferill Þorvarðar spannar yfir fjóra áratugi, og hófst með sjálfstæðum verkefnum í ljósmyndun á fyrri hluta níunda áratugarins, áður en hann hóf nám í kvikmyndagerð á árunum 1989–1992.


Photo: Juanjo Zaldivar
Hlustið hér á Þorvarð segja frá verkum sínum og jöklum á íslensku: