Sýningunni fylgir fræðslurými og sýningin Norðrið á barnabókasafni Norræna hússins sem unnin er í samstarfi við grunnskóla í Reykjavík. Verkefnin hvetja nemendur og gesti til að kanna loftslagsbreytingar í gegnum sköpun, samtal og ígrundun og skoða hvernig vísindaleg þekking, listræn nálgun og líkamleg reynsla fléttast saman.
Á sýningartímanum (febrúar–maí 2026) mun röð vinnustofa, fyrirlestra og málstofa tengja saman listafólk, fræðafólk, kennara og ungt fólk víðs vegar af Íslandi. Þessi verkefni ná hámarki með barnasýningunni “Norðið” sem verður hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík. Með þessum hætti eru þemu Ripples færð inn í ný samhengi kynslóða og samfélaga.
Málþing: Listkennsla fyrir loftslagið:
Málþingið Listkennsla fyrir loftslagið, var haldið Laugardaginn 7. febrúar. Athugið að fyrri hluti málþingsins fór á ensku og seinnihluti fór fram á íslensku.
Norðurslóðir eru að breytast hratt. Jöklar bráðna og veður breytast. Þessar breytingar breiðast út eins og gárur og hafa áhrif á fólk, dýr og allan hnöttinn. Sýningin Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum sýnir hvernig listamenn kanna þessar breytingar. Hún minnir okkur á að litlar aðgerðir skipta máli og að við deilum öll ábyrgð á framtíð Norðurslóða.
Upptöku af málþinginu má nálgast á heimasíðu Norræna hússins.
Ripples, Dreaming of Beach, photo collage by Ivínguak Stork Høegh