Britta Marakatt-Labba er þekkt samísk listakona. Hún vinnur með textíl til að sýna djúp menningarleg og andleg tengsl sama við snjó og náttúruna alla. Í verkum hennar birtist hvernig líf á norðurslóðum mótast af náttúrulegum hringrásum og árstíðabreytingum.
Verk Britta Marakatt-Labba er að finna í innri sal sýningarýmisins. Þar má fyrst sjá myndband sem sýnir verkið Historjá, 24 metra langt útsaumað frásagnarverk sem segir sögu Sámi-fólks með myndmáli af mikilli nákvæmni. Hver saumur ber með sér minningu og fangar seiglu þjóðar sem hefur lifað í nánu sambandi við náttúru og hefðir. Verkið hvetur til íhugunar um menningarlega samfellu og hvernig saga er skráð, varðveitt og endursögð.
Á vegg þar við hliðiná eru fjögur silkiprent:
Snjóryk (silkiprent)
Snjókornin sem þyrlast upp verða að frásagnarefni sem rekja ferðalög og landslag
í tímans rás
Vatnið sem var tæmt (silkiprent)
Verkið segir frá því hvernig stöðuvatnið Luossajärvi í Kiruna, var tæmt til að rýma fyrir námuvinnslu. Í margar kynslóðir veitti vatnið hvíld fyrir hreindýr og skjól fyrir hirðingjafjölskyldur, auk þess að vera útivistarsvæði fyrir íbúa. Hvarf þess endurspeglar djúpstæð og oft vangreind áhrif iðnaðarframfara á líf, menningu og náttúru Sámi-fólks.
Umhverfið getur ekki beðið (silkiprent)
Verkið sýnir útlínur námufjalls sem gnæfir yfir fyrrum gróðurlendi. Það dregur fram spennuna milli iðnaðar, loftslagsbreytinga og brýnna þarfa til að vernda viðkvæm vistkerfi. Áhrif hlýnun jarðar á umhverfi og menningu eru í forgrunni og undirstrika að þessar áskoranir eru raunverulegar og hafa víðtæk áhrif á landslag, samfélög og komandi kynslóðir.
Á leiðinni (silkiprent)
Verkið sýnir árlega ferð hreindýrahirða með hjörð sína á sumarbeitilönd, mikilvæga hefð í lífi Sámi-fólks. Með einkennandi myndmáli sínu fangar listakonan hreyfingu, umhyggju og samfellu, og sýnir hvernig hefðir, landslag og lífsafkoma eru tengd órjúfanlegum böndum.
Æviágrip
Britta Marakatt-Labba fæddist árið 1951 og ólst upp í hreindýrahirðingjafjölskyldu í Lainovuoma. Listferill hennar hófst árið 1979, eftir að hafa lokið námi við School of Design and Crafts í Gautaborg. Eftir námið tók hún þátt í að stofna Masi-hópinn og byggja upp samtök samískra listamanna. Á níunda áratugnum tók hún þátt í Alta mótmælunum, sem hún túlkaði í þekktu verki sínu The Crows (1983).
Britta Marakatt-Labba býr og starfar í Övre Soppero og hefur verið virk í listsköpun í yfir fjóra áratugi. Hún hefur sýnt víða og unnið til margra verðlauna en ferill hennar fór fyrst á flug árið 2017 þegar 24 metra langt útsaumsverk hennar Historjá (2003–2007) var sýnt á hinni virtu samtímalistasýningu Documenta 14. Líf og list hennar var fest á filmu í kvikmyndinni Historjá – Stitching for Sápmi (2022).