Listræn nálgun Høegh er sprottin af lifandi samruna götulistar, popp‑fagurfræði, fundinna mynda og stafrænnar klippimyndagerðar. Verk hennar einkennast af litríkum samsetningum og sjónrænum hrynjanda sem sækja innblástur í sögur, umhverfi og reynsluheim Kalaallit. Sem hluti af fjölskyldu sem hefur lengi verið virkt í listum, tónlist og menningarstarfi bæði í Kalaallit Nunaat og Danmörku starfar Høegh innan víðara menningarlegs samhengi sem mótar þverfaglega sýn hennar.
Verk Ivínguak Stork Høegh er bæði að finna í sýningarrýminu Hvelfingu á í barnabókasafni Norræna hússins á sýningunni Norðrið.
Í verkum sínum endurmótar hún framtíðarsýn norðursins í anda Indigenous Futurism og blandar saman litadýrð og menningarlegum táknum til að skapa mynd af seiglu, umbreytingu og síbreytilegum norðlægum sjálfsmyndum.
Verk í innra rými Hvelfingar:
Inn í ísfjallinu, (stafræn klippimynd, 2021)
Sikorsuaq – Stóri borgarísjakinn, (stafræn klippimynd, 2021)
Dagur á ströndinni (stafræn klippimynd, 2025)
Verkið er úr seríunni Framandi Norðurheimskautasvæði, sem skoðar framandleika með því að para saman grænlenskar aðstæður við suðrænar myndir. Þessar andstæður afhjúpa arfleifð nýlenduhyggju í ljósmyndun og hlutverk hennar í að móta hugmyndir um „hina“. Í stað afdráttarlausrar gagnrýni notar verkið samsuðu hugmynda og sjónræna árekstra til að kanna hvernig menningarleg samskipti mótast af marglaga og brotakenndum sjónarhornum.
Nipersuaq – Það eru mikil læti hérna (stafræn klippimynd, 2015)
Án Titils (stafræn klippimynd, 2025)
Bæði verkin eru úr seríunni Heima– Samfélagið mitt. Með ljósmyndun og klippimyndatækni er dregin upp mynd af lífi á Grænlandi, þar sem andlitsmyndir, brot úr byggingum og smáatriði í áferð fléttast saman. Verkin kanna þjóðernishyggju, umhyggju og félagslega baráttu. Undir áhrifum frá veggjakroti og götulist endurspeglar serían orkuna sem móta daglegt líf í ört vaxandi borginni Nuuk.
STOPP, 2025 (stafræn klippimynd og vídeó)
Hér bíður áhorfandans óvænt upplifun. Með því að staldra við, færa sig nær og horfa í gegnum gleraugu konunnar á myndinni, sér áhorfandinn myndband af svolitlu óvæntu.
Viljir þú halda áfram inn í barnabókasafn til að skoða sýninguna þar, getur þú beðið starfsfólk í afgreiðslu að opna fyrir þér.
Æviágrip
Ivínguak Stork Høegh er Inuk, fædd árið 1982 í bænum Aasiaat í Kalaallit Nunaat (Grænlandi). Listsköpun hennar spannar grafíska hönnun, klippimyndir og vídeólist. Hún stundaði nám við Grænlenska Myndlistaskólann í Nuuk og síðar við Listaháskólann í Árósum í Danmörku. Árið 2021 tók hún við stöðu skólastjóra Grænlenska Myndlistaskólans.

Stop. Photo collage by Ivínguak Stork Høegh.