Josefina Nelimarkka vinnur með þverfaglega nálgun þar sem rannsóknir á umhverfi, skynjun og upplifun mynda grunn að listsköpun hennar. Hún notar hverfandi efni og rýmisbundnar aðferðir til að skapa íhugular innsetningar sem kanna fljótandi mörk lofts og vatns og tímaskyn jarðar. Hún leggur áherslu á samspil náttúru og tækni, og verk hennar breytast í takt við andrúmsloft, ljós og veður. Þannig hvetur hún áhorfendur til djúprar hlustunar og nýrra leiða til að skynja nærveru og tengsl við umhverfið.
Á sýningunni hefur Josefina Nelimarrka sett upp innsetninguna The Cloud of Un/knowing þar sem hún nýtir veðuröfl Íslands og breytingar Vatnajökuls til að rekja ferð vatns í gegnum hringrásina, bæði sem efnislegt ferli og myndlíkingu fyrir óvissu.
Innsetningin byggir á þremur sjálfstæðum verkum:
The Cloud Hour, 2024 (Vídeó og hljóðinnsetning, gagnvirk gagnatækni)
Rauntímagögn frá veðurstöð á þaki Norræna hússins stýra síbreytilegum mynd- og hljóðheimi verksins, þar sem ósýnilegar upplýsingar um loftslagið eru þýddar yfir í gufukenndar hreyfimyndir og hljóðverk. Veðurathugunarstöðin á þaki Norræna hússins var sett upp í samstarfi við veðurathugunarstöðina Vaisala í Finnlandi.
Intensities, futurities, 2024 (Glerskúlptúrar, gagnadrifið ljós)
Ljós í glerverkum breytist í rauntíma í samræmi við samsætugildi vatns sem greind eru úr vatnsgufu frá Vatnajökli. Fínlegar hreyfingar sýna loftbólur sem lokuðust inni í glerinu við kraftmikið blástursferlið. Verkið dregur fram ósýnileg, hröð en merkingarbær augnablik sem eiga sér stöðugt stað á svæðum sem hlýna hraðar en aðrir hlutar jarðar.
Beneath the transient states, there is now 2024 (silki innsetning, nanomicroscopy) Verkið byggir á langtímarannsóknum listamannsins á fornu veðurfari. Upplýsingar um loftslag fortíðarinnar varðveitist í umhverfinu, í steinum, loftsteinum, kóröllum og þörungum. Myndir teknar með rafeindasmásjá birtast á yfirborði silkisins. Ummerki loftslags frá ólíkum tímum og stöðum sýna hversu viðkvæm náttúran er fyrir breytingum þegar aðstæður á jörðinni taka stakkaskiptum.
Æviágrip
Nelimarkka er útskrifuð frá Myndlistarakademíunni í Helsinki og Royal College of Art í London. Hún hefur sýnt verk sín víða á alþjóðavettvangi, meðal annars í Institute finlandais í París, Amos Rex safninu í Helsinki og á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP30, í Brasilíu. Rannsóknir hennar þessa dagana beinast að skýjum og veðrakerfum á norðurslóðum í samhengi loftslagsbreytinga, með áherslu á samtal listar og vísinda.
The Cloud of Unknowing by Josefina Nelimarkka. Photo: Jakob Johannsen