Wagnerfélagið: Söngkona aldarinnar


14:00 - 15:30

Wagnerfélagið: Söngkona aldarinnar

Fyrirlestur í Norræna húsinu laugardaginn 19. maí kl. 14 í tilefni aldarafmælis Birgit Nilsson


Birgit Nilsson var ein fremsta dramatíska óperusöngkona 20. aldar. Hún fæddist í maí 1918 og er nú haldið upp á aldarafmæli hennar víða um heim.  „La Nilsson“ debúteraði í Konunglega óperunni í Stokkhólmi árið 1946. Árið 1954 söng hún sitt fyrsta hlutverk í Bayreuth sem Elsa í Lohengrin og var það fyrsta sumarið af sextán sem hún varði í  Bayreuth þar sem hún söng Brünnhilde og Isolde allt til ársins 1970.

Dr. Sveinn Einarsson leikstjóri og fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri mun annast dagskrá um Birgit Nilsson á vegum Wagnerfélagsins og hefst hún laugardaginn 19. maí kl. 14

Um Svein: http://sveinneinarsson.weebly.com/ferilskraacute.html.

Verið hjartanlega velkomin!