Velgengni norskra bókmennta


17:00-18:30

Norskar bókmenntir hafa notið mikillar velgengni erlendis undanfarin ár. Um eitt þúsund norskir titlar eru þýddir á eitthvert annað mál á hverju ári. Þetta kom sérlega vel í ljós á bókasýningunni í Frankfurt haustið 2019 þar sem Norðmenn voru heiðursgestir, en Halldór Guðmundsson stýrði því verkefni fyrir hönd Noregs.

Halldór Guðmundsson segir frá starfi sínu fyrir granna okkar í austri þriðjudaginn 18. febrúar kl. 17. Hann mun einnig fjalla um norskar samtímabókmenntir og hvað valdi frábærum viðtökum þeirra á alþjóðavettvangi á undanförnum árum.

Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, flytur ávarp í upphafi fundar.

Fundurinn er haldinn á vegum Norræna félagsins í Reykjavík í samvinnu við Norræna húsið og verkefnið Norðurlönd í fókus.