NÝTT ÞJÓÐARSJÚKRAHÚS Á BETRI STAÐ EÐA VIÐBYGGING VIÐ HRINGBRAUT ?


13:45 - 16:30

NÝTT ÞJÓÐARSJÚKRAHÚS Á BETRI STAÐ EÐA VIÐBYGGING VIÐ HRINGBRAUT ? – Hvað vinnst, hvað tapast?

 

Opinn fundur Samtaka um betri spítala á betri stað með fagfólki og fulltrúm stjórnmálaflokkanna í höfuðborginni. Föstudaginn 11. maí kl. 13:45 – 16:30 í Norræna húsinu

 

  • Hvernig á að velja stað fyrir þjóðarsjúkrahús?
  • Tekur lengri tíma að byggja nýjan spítala á nýjum stað?
  • Er dýrara að byggja nýjan Landspítala á nýjum stað?
  • Er Hringbraut vandamál fyrir sjúkraflutninga?
  • Hvað er mikilvægast að gera fyrir heilbrigðiskerfið meðan beðið er eftir nýjum spítala?

 

Fjallað verður um þessar spurningar og fleiri faglega frá ýmsum hliðum.  Síðan munu fulltrúar stjórnmálaflokkanna lýsa afstöðu sinna flokka til málsins.

Skráning er á www.betrispitali.is/skraning. Ráðstefnugjald kr. 1.500.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

 

Fundarstjóri

Snæbjörn Brynjarsson, blaðamaður og listamaður

 

Dagskrá

13:45 Skráning / kaffi

 

14:00 – 15:15 Framsöguerindi

Ávarp: Alma D. Möller, landlæknir eða Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.  Óstaðfest

Nýr Landspítali við Hringbraut, hvers vegna?: Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Óstaðfest.

Fagleg staðarvalsgreining fyrir spítala: Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfræðingur FSFFí, lektor við Landbúnaðarháskólinn

Reynsla frá Stavanger um staðarvalsgreiningu fyrir spítala: Hallgrímur Þór Sigurðsson, meðeigandi hjá Nordic arkitektastofunni í Noregi

Bygging spítala, stóra myndin:  Sigurður R. Ragnarsson forstjóri ÍAV

Bygging spítala, praktísk atriði.  Ólafur Sæmundsson, byggingaverktaki.

Samanburður á hagkvæmni staðsetninga: Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur

Núverandi spítali vs. nýr spítali?: Dr. Birgir Guðjónsson (óstaðfest)

 

15:15 Kaffiveitingar

 

15:30 Pallborð fulltrúa stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til sveitastjórna í Reykjavík (Þátttaka sumra er óstaðfest ):

 

Alþýðufylkingin

Borgin okkar Reykjavík

Flokkur fólksins, Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur

Framsóknarflokkur, Ingvar Jónsson, flugstjóri, oddviti listans

Frelsisflokkurinn

Höfuðborgarlistinn, Björg Sigurþórsdóttir, oddviti listans

Íslenska þjóðfylkingin, munu mæta

Karlalistinn

Kvennahreyfingin

Miðflokkurinn, Vigdís Hauksdóttir, oddviti listans

Píratar, Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti listans

Samfylkingin, Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi

Sjálfstæðisflokkur, Eyþór Arnalds, oddviti listans

Sósíalistaflokkur Íslands

Viðreisn, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Vinstrihreyfingin grænt framboð, Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi

 

16:30 Ráðstefnulok