Norrænar loftslagslausnir í borgum og bæjum: Green to Scale


15:00-17:00

Verið velkomin á opinn fundur mánudaginn 18. nóvember í Norræna húsinu kl. 15 um norrænar loftslagslausnir í borgum og bæjum

Um það bil 70% losunar koltvísýrings á heimsvísu kemur frá borgum og bæjum. Borgir gegna því lykilhlutverki þegar kemur að innleiðingu loftslagslausna. Í Green to Scale verkefninu er sýnt fram á hvernig má yfirfæra þekktar og reyndar loftslagslausnir milli norrænna borga með litlum tilkostnaði til hagsbóta fyrir umhverfi og íbúa. Green to Scale verkefnið er leitt af Sitra, finnska nýsköpunarsjóðnum og fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni. Verkefnið er unnið í samstarfi allra Norðurlandanna og hefur Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun leitt verkefnið yfir Íslands hönd.

Á fundinum verður nýjasta skýrsla Green to Scale verkefnisins kynnt og hún sett í samhengi við íslenskar aðstæður. Að kynningu lokinni verða pallborðsumræður um hvaða loftslagslausnir frá norrænum borgum, borgir og bæir á Íslandi geta tekið sér til fyrirmyndar.

Meðal þátttakenda verða Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Mariko Landström loftslagssérfræðingur hjá Sitra og Brynhildur Davíðsdóttir prófessor við Háskóla Íslands.

Fundarstjóri verður Guðrún Pétursdóttir framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands.

*Í Green to Scale verkefninu er sýnt fram á hvernig má yfirfæra þekktar og reyndar loftslagslausnir milli norrænna borga með litlum tilkostnaði til hagsbóta fyrir umhverfi og íbúa.