Myndlist í anddyrinu – Artotek Norræna hússins


Velkomin á sýningu með myndlist úr Artóteki bókasafnsins í anddyri Norræna hússins. Sýningin stendur yfir til 23. febrúar og er aðgangur ókeypis.

Artótekið eða listlánasafnið er safn grafíkverka sem eru til útlána fyrir almenning. Þeir sem eiga bókasafnskort í bókasafni Norræna hússins geta valið sér allt að þrjú listaverk að láni í 3 mánuði í senn. Öllum er velkomið að kaupa bókasafnskort í safninu.

Í Artótekinu eru um 600 grafíkverk frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Gestir geta skoðað myndir af öllum verkunum í yfirlitsmöppum eða skoðað listaverkin í Artótekinu sjálfu í bókasafni Norræna hússins.

Saga Artóteksins nær aftur til ársins 1972. Það ár fékk Norræna húsið 200 grafíkverk að gjöf frá Norræna grafíksambandinu, sem var grunnurinn að listlánasafni, Artóteki.
Útlán hófust árið 1976. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Artotek Norræna hússins.

Myndlist í anddyrinu
Myndlist í anddyri Norræna hússins hefur það að markmiði að kynna norræna og baltneska myndlist og myndlistarmenn/konur. Til að sækja um að sýna í anddyri Norræna hússins sendið póst á gunn@nordichouse.is.